2.10.2008 | 11:09
Fólk segir að það sé ekki kreppa !!
Nú þarf að bjarga heimilunum og það strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.9.2008 | 09:55
Frysta lánin mín takk !
Djö.... að ég skyldi ekki taka lán hjá þessari ´"góðu" stofnun á sínum tíma. En já ég á svosum ekki nema eina eign, eða öllu heldur ég og bankinn.
En það er spurning hvort "allir góðu bankarnir" fari sömu leið og Íbúðalánasjóður og leyfi viðskiptamönnum sínum að setja lánin sín í frost ? Það væri altént afar gott að stoppa þá hækkun sem hinar svokölluðu EFTIRSTÖÐVAR eru stanslaust að ibba sig svo maður svitnar þegar heimabankinn er opnaður. Milla ofan á millu, hvar endar þetta ? Þetta er svívirða að þeir sem einhverju ráða hér hafi ekki bein í nefinu til þess að fella verðtryggingu lána niður.
Þá þarf enginn að fá neitt fryst, ja nema kannski einn og einn stjórnmálamann. En það er ekki boðið upp á slíkt.
Mikill áhugi á frystingu lána | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2008 | 14:11
Nafnaleynd til að
geta tjáð mig hömlulaust um málefnin án þess þó að úthúða mönnun persónulega, nema menn eigi það skilið.
Byrjum á því að ræða um þessa óblessuðu verðBÓLGU, sem virðist ekki snerta fólk nema rétt svo á yfirborð húðar. Yfirdrátturinn bjargar þessu öllu saman !!!!´
Lánin hækka og ganga ekki til baka þó að verðbólgan hjaðni ( bjartsýnishjal í mér )
Ég vil líta á þetta sem aðgerð; "SURVIVAL OF THE FITTEST"
Höfuðstöðvar: RÍKISVALDIÐ og fleiri ekki ómagar.
Markmið HREINSA TIL Í RÍKINU, senda aumingjana út í móa og leyfa hinum "ríku" að blómstra á mölinni.
Niðurstaða: INNAN SKAMMS TÍMA VERÐUR "GJALDÞROT" mest notaða orð í jólakortunum.
Hugsun á bak við þetta allt ???????????? Spekúlantar ríkisvaldsins ???? Bankamenn ??? Seðlabankamenn ??? Mafían í Rússlandi ?? Ítalska mafían ?? ahhh gefst upp eins og er á þessu bévitans bulli sem r-valdið hellir yfir okkur og gerir AKKÚRAT ekki neitt í málinu!!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.10.2008 kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)